Kæri viðskiptavinur

Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að taka yfir vald hluthafafundar Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. (SPRON) og víkja stjórninni frá þegar í stað.

Fjármálaeftirlitið hefur skipað skilanefnd sem skal fara með öll málefni SPRON, þar á meðal að hafa umsjón með allri meðferð eigna SPRON. Þá hefur FME tekið ákvörðun um ráðstöfun eigna og skulda SPRON. Nýi Kaupþing banki hf. mun yfirtaka skuldbindingar bankans samkvæmt nánari lýsingu.

 

Þessi ákvörðun hefur bein áhrif á starfsemi Netbankans þar sem hann er dótturfélag SPRON. Öll innlán viðskiptavina Netbankans hafa verið færð til Nýja Kaupþings í útibú 0344 sem staðsett er að Laugavegi 120. Allar fyrirspurnir varðandi stöðu innlána er hægt að nálgast hjá starfsfólki Kaupþings í síma 444 7000, á heimasíðu þeirra www.kaupthing.is eða í útibúum. Áréttað er að allar innstæður eru að fullu tryggðar skv. yfirlýsingu frá ríkisstjórninni.

 

Frá og með 18. maí 2009 mun öll þjónusta og umsýsla vegna lána færast til Kaupþings.

 

 
Kær kveðja,
starfsfólk Netbankans
 
 

Þjónusta