ABC-kortin

Netbankinn, ABC-barnahjálp og Barnaland.is kynna samstarf sem kemur ungum fjölskyldum og bágstöddum börnum í heiminum til góða.
ABC-kortin eru þau fyrstu sinnar tegundar í heiminum. Með ABC-kortunum gefst fólki einstakur kostur á því að njóta viðtæks afsláttar og fríðinda sem taka mið af þörfum barnafjölskyldna og styrkja um leið börn víðsvegar um heiminn. Samtarfsaðilar ABC-kortanna eru öflugu fyrirtæki sem þjónusta barnafólk og eru leiðandi á markaði á sínu sviði.
ABC-kreditkort
Við stofnun ABC-kreditkortsins gefur Netbankinn 1.000 kr. til ABC-barnahjálpar. Samstarfsfyrirtækin láta 1% af viðskiptum korthafa renna til ABC-barnahjálpar og veita einnig korthöfum góðan afslátt. ABC-kreditkort hentar því einkar vel til viðskipta við alla samstarfsaðila kortsins og þegar þú verslar við þessi fyrirtæki njóta fátæk börn góðs af.
ABC-debetkort
Við stofnun ABC-debetkorts gefur Netbankinn 1.000 kr. til ABC-barnahjálpar. Öll færslugjöld af kortinu renna til ABC-barnahjálpar. Með því að nota ABC-debetkortið daglega gerir þú góðverk á hverjum degi. ABC-debetkortið hentar einkar vel til daglegs rekstur heimilisins og sýnir stuðning þinn við bágstödd börn í verki.
ABC-gulldebetkort
Yfirdráttarvextir ABC-gulldebet eru allt að fjórðungi lægri en hjá stóru bönkunum. Færslugjald fyrir hverja færslu er 50 kr. og rennur óskipt til ABC-barnahjálpar. Þetta kort hentar þeim vel sem vilja styrkja bágstödd börn víða um heim á vegum ABC-barnahjálpar og njóta um leið góðra viðskiptakjara.
ABC-barnahjálp
Starf ABC-barnahjálpar snýst um að bæta hag bágstaddra barna. Markmiðið er að veita yfirgefnum og umkomulausum börnum varnalega hjálp í formi menntunar og heimila þar sem þess er þörf, auk þess að njóta læknishjálpar, framfærslu og síðast en ekki síst umhyggju. Þú getur styrkt ABC-barnahjálp með því að fá þér ABC-kort, kaupa ABC-styrktarbol og styrkja barn á vegum barnahjálparinnar. Nánar
Samstarf til hjálpar bágstöddum börnum
ABC-barnahjálp, Netbankinn og Barnaland.is eru aðalsamstarfsaðilar ABC-kortanna. Auk þess njóta ABC-kortin sérstaks stuðnings öflugra samstarfsaðila. Samstarfsaðilar bjóða korthöfum sérstök vildarkjör og styrkja starfssemi ABC-barnahjálpar með því að láta 1% af viðskiptum ABC-kreditkorthafa renna til ABC. Nánar
Með ABC-kortunum býðst einstakt tækifæri til að njóta betri kjara og styrkja um leið gott málefni.