Fjármálaeftirlitið hefur skipað skilanefnd sem skal fara með öll málefni SPRON, þar á meðal að hafa umsjón með allri meðferð eigna SPRON. Þá hefur FME tekið ákvörðun um ráðstöfun eigna og skulda SPRON.
Þessi ákvörðun hefur bein áhrif á starfsemi Netbankans þar sem hann er dótturfélag SPRON.


Viðskiptavinum Netbankans nb.is er bent á að starfsemi Netbankans liggur niðri þar til Fjármálaeftirlitið hefur fjallað um sölu skilanefndar SPRON á bankanum til MP banka en starfsemin heyrir undir skilanefnd SPRON samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins dagsett 21. mars 2009.






nb.is - sparisjóður hf. - Lágmúla 6, 108 Reykjavík - kt. 540502 2930 - Sími: 550-1800 - Fax: 550-1801